Algengar spurningar
Ef þú valdir Dropp afhendingarstað getur afhending sendingarinnar dregist um einn til tvo virka daga. Þegar sendingin hefur borist á afhendingarstað færð þú SMS skilaboð frá Dropp með QR- Kóða.
Hægt er að breyta heimilisfangi á sendingum hér: Breyta afhendingarstað.
Útkeyrsla getur verið breytileg eftir fjölda sendinga og óviðráðanlegra tafa, en yfirleitt er afhendingartími á bilinu 11:00-17:00. UPS keyrir ekki út á kvöldin.
Geymslugjöld reiknast af sendingum þremur virkum dögum eftir komu sendingar, ef afhending hefur ekki farið fram. Gjaldið er reiknað út frá umfangi sendingar og lengd geymslutíma (sjá verðskrá). Ef afhending tefst vegna skorts á gögnum, ófullnægjandi upplýsinga eða annarra atriða sem ekki hefur verið bætt úr innan þessa tíma, reiknast geymslugjald þar til viðeigandi gögn/upplýsingar berast. Bílstjórar gera allt að þrjár afhendingartilraunir. Ef þær bera ekki árangur eru sendar tilkynningar til bæði sendanda og móttakanda til að greina ástæður tafanna. Berist engin svör fer sending í endursendingarferli.
Þetta gjald er þjónustugjald sem tekið er vegna umsýslu opinberra gjalda fyrir þá viðskiptavini sem ekki eru með skuldfærsluheimild á eigin tollkrít.
Hægt er að sækja sendingar í vöruhús okkar (eftir hádegi), af því gefnu að það sé tilkynnt fyrirfram. Viðtakandi getur farið í Breyta Afhendingarstað og valið „Sækja í vöruhús – Fálkavellir“. Vöruhús okkar er staðsett á Fálkavöllum 7, 235 Keflavíkurflugvelli, fyrir aftan aðalbyggingu Airport Associates & UPS.
Einnig er hægt að skrá pakka til afhendingar á einum af fjölmörgum Dropp afhendingarstöðum. Séu sendingar með skráð símanúmer berst tilkynning á móttkanda þar sem hægt er að velja afhendingarstað, ef ekkert er valið fer sending í útkeyrslu. Ef engin tilkynning berst er hægt að hafa samband við okkur.
Í tollalögum er kveðið á um sérstakar og afmarkaðar undanþágur frá greiðslu aðflutningsgjalda vegna gjafa sem sendar eru til einstaklinga. Undanþágur gilda eingögnu um gjafir sem einstaklingar senda öðrum einstaklingum og ná ekki til gjafa frá fyrirtækjum til einstaklinga.
Tollverðir meta í hverju tilviki hvort skilyrði undanþágu séu uppfyllt. Varan er skoðuð og Tollvörður þarf að staðfesta að um gjöf sé að ræða áður en virðisaukaskattur og önnur aðflutningsgjöld eru felld niður.
Hér má finna samantekt af þeim skilyrðum sem sending þarf að uppfylla til að vera undanþegin aðflutningsgjöldum.
Ath: þegar um vín eða aðrar áfengisvörur er að ræða gildir undanþága vegna gjafa ekki. Af slíkum sendingum þarf að greiða aðflutningsgjöld, óháð því hvort varan teljist sem gjöf.
Nei útflutningsaðili ber ábyrgð á því að kynna sér innflutningsreglur í því landi sem hann er að senda til.
Hér má sjá hvað má ekki flytja inn til Íslands: Takmarkanir og bönn | Skatturinn – skattar og gjöld
Sendingar eru sóttar á milli 9:00 – 13:30 alla virka daga.
Express er afhent fyrir hádegi næsta virka dag.
Express Saver er afhent fyrir lok næsta virka dags.
ATH. Ekki öll svæði bjóða uppá Express.
Til að fá virðisaukaskatt endurgreiddan frá Skatti þarf að óska eftir E-14 skoðunarbeiðni, sjá verð í gjaldskrá, þegar hún hefur fengist stimpluð færð þú hana senda í tölvupósti. Ef innflutningsaðili er annar en UPS þarft þú að skila skoðunarbeiðninni til þeirra til að fá úrvinnslu á endurgreiðslu en annars fer sending þín í afgreiðslu 2, sjá verð í verðskrá, og færð endurgreitt þegar tollafgreiðsla hefur farið í gegn hjá Skattinum.
Samkvæmt tollalögum skal greiða virðisaukaskatt af heildarverðmæti sendingar. Ef kaupandi greiðir flutningskostnað til seljanda telst sá kostnaður hluti af verðmæti vörunnar. Þegar sending er tollafgreidd inn í landið er því virðisaukaskattur reiknaður af bæði kaupverði vörunnar og flutningsgjaldi.