Almennir Þjónustuskilmálar
Express ehf., kt. 540478-0589, Fálkavelli 7, 235 Keflavíkurflugvöllur, er umboðsaðili fyrir UPS á Íslandi. Express ehf., í umboði UPS, býður viðskiptamönnum sínum upp á fjölþáttaflutning og flutning frá höfn til hafnar samkvæmt öllum skilmálum, skilyrðum og undanþágum sem fram koma í flutningsskilmálum UPS, sem finna má meðal annars á farmbréfum þess. Jafnframt býður Express ehf. upp á aðra þjónustu, sem fellur ekki undir fjölþáttaflutning og flutning frá höfn til hafnar, en um þá þjónustu skulu eftirfarandi almennir þjónustuskilmálar Express ehf. gilda.
1. Skilgreiningar
Í skilmálum þessum skulu eftirfarandi hugtök hafa þessa merkingu:
“Dótturfélag” er hvert annað félag sem félagið, Express ehf., á að fullu og/eða á meirihluta í og/eða fer með meirihluta atkvæða hverju sinni.
“Farmbréf” er farmskírteini og/eða fylgibréf félagsins fyrir fjölþáttaflutning og/eða flutning frá höfn til hafnar.
„Félagið“ merkir Express ehf., kt. 540478-0589, Fálkavelli 7, 235 Keflavíkurflugvöllur og dótturfélög þess eins og þau eru á hverjum tíma.
„SDR“ er alþjóðleg verðmæliseining sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn notar. Það á að reikna verðmæliseiningu til íslensks gjaldeyris eftir gengi dagsins sem greiðsla fer fram.
“Undirverktakar” eru beinir eða óbeinir undirverktakar sem og starfsmenn, umboðsmenn og undirverktakar þeirra.
“Vara” er hlutur, farmur eða varningur og felur í sér hver skyns umbúðir og gáma sem vöru er pakkað eða safnað í, en með gámi er átt við hvers kyns gám, tengivagn, flytjanlegan geymi, fleti eða bretti eða hverskyns sambærilega flutningseiningu, sem notuð er til að halda vörum saman. Vara er við tollafgreiðslu hver sá hlutur eða hlutir sem tilgreindir eru í tollskýrslu og geta fengið tollmeðferð samkvæmt tollskrá.
“Viðskiptamaður” er einstaklingur og lögpersóna og merkir þann sem pantað hefur eða óskað hefur eftir því við félagið að það inni af hendi tiltekna þjónustu og/eða þann sem félagið veitir þjónustu og/eða þann sem á vöru eða á rétt til eignarhalds á henni svo og hvern þann er starfar sem starfs- eða umboðsmaður eða á annan hátt í þágu nefndra aðila og kemur fram fyrir hönd þeirra.
“Þjónusta” þýðir öll verk, eða hluti verka, sem félagið tekur að sér fyrir viðskiptamann þar með talið, en þó ekki tæmandi, hvers konar ráðleggingar og/eða upplýsingar, bókun flutnings, for- og áframflutningur með skipum, bifreiðum eða hvers konar öðrum flutningsförum eftir því sem við á, útfylling farmbréfa, talning, flokkun og hleðsla vöru á bretti, plöstun vöru, hleðsla og sjóbúningur í gáma, vörugeymsla, tilfærsla vöru á milli gáma, tilfærsla vöru og/eða gáma í höfnum eða á geymslusvæðum, ástandsskoðun vöru, akstur með vöru frá viðskiptamanni og til viðskiptamanns, gámaleiga, flutningur skipspósts og önnur meðferð skjala, tollmiðlunarþjónusta, skipaafgreiðsla, losun og lestun skipa, vinna um borð í skipum, löndun fiskiskipa og öll verk tengd því og hvaða annað verk sem er, sem samið hefur verið um við félagið að það taki að sér. Framangreind upptalning eru dæmi um þau verk sem félagið tekur að sér. Taki félagið að sér önnur verk en nefnd eru hér að framan skulu þau falla undir skilgreiningu þessa.
2. Gildissvið
Skilmálar þessir skulu gilda um hvers konar þjónustu sem félagið eða dótturfélög þess taka að sér fyrir viðskiptamann, hvort sem greitt er fyrir hana eða ekki, að því marki sem slík þjónusta fellur ekki undir flutning samkvæmt farmbréfum félagsins, ófrávíkjanlegum lögum eða öðrum skilmálum félagsins sem sérstaklega hefur verið samið um skriflega að skuli gilda um réttarsamband aðila.
Komi til þess að ósamræmi sé annars vegar á milli skilmála þessara og hins vegar farmbréfa félagsins, ófrávíkjanlegra laga og/eða annarra skriflegra skilmála félagsins, sem sérstaklega hefur verið samið um að gildi um réttarsamband aðila, skulu skilmálar þessir víkja fyrir nefndum skilmálum og lögum.
Skilmálar þessir, þar á meðal undanþágur frá ábyrgð, varnir, réttindi og ábyrgðartakmarkanir, skulu gilda í hverskyns málarekstri gegn félaginu hvort sem krafan byggist á samningi eða skaðabótaskyldum verknaði utan samninga og jafnvel þótt bótaskylda hafi stofnast vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis eða höfnun samnings eða verulegra vanefnda.
Skilmálar þessir skuli gilda um réttarsamband viðskiptamanns og félagsins sem og réttarsamband eiganda vöru og félagsins, sé eigandi hennar ekki jafnframt viðskiptamaður.
3. Þjónusta
Félagið skuldbindur sig til þess að veita þá þjónustu sem það tekur að sér fyrir viðskiptamann á eðlilegan og vandvirkan hátt.
4. Ábyrgð félagsins og ábyrgðartími
4.1. Ábyrgð
Félagið ber skaðabótaábyrgð eftir almennum reglum skaðabótaréttar á beinu tjóni viðskiptamanns, sem rekja má til ásetnings eða stórfellds gáleysis félagsins eða aðila sem það ber ábyrgð á, með þeim undantekningum sem fram koma í skilmálum þessum. Sönnunarbyrði um skaðabótaábyrgð félagsins hvílir á þeim sem heldur því fram að félagið beri ábyrgð.
4.2. Upphaf ábyrgðar
Sé um að ræða meðhöndlun vöru eða þjónustu vegna vöru skal upphaf ábyrgðar eftir 4.1. gr. miðast við þann tíma þegar félagið hefur fengið vöru afhenta í vörslur sínar. Í öllum öðrum tilvikum skal upphaf ábyrgðar miðast við þann tíma er viðkomandi þjónusta hófst.
4.3. Lok ábyrgðar
Sé um að ræða meðhöndlun vöru eða þjónustu vegna vöru skulu lok ábyrgðar eftir 4.1. gr. miðast við þann tíma þegar vara hefur verið afhent eða þegar vöruna bar að afhenda. Í öllum öðrum tilvikum skulu lok ábyrgðar miðast við þann tíma er viðkomandi þjónustu er lokið.
5. Upphæð bóta og undanþága frá ábyrgð
5.1. Ákvörðun bótafjárhæðar
Þegar félaginu ber að greiða bætur vegna taps eða skemmda á vöru ber að reikna fjárhæð slíkra bóta eftir verðmæti vörunnar samkvæmt vörureikningi. Liggi verðmæti vörunnar samkvæmt vörureikningi ekki fyrir skulu slíkar bætur reiknaðar eftir verðmæti vöru sömu tegundar og af sömu gæðum þegar tjónið átti sér stað. Sönnunarbyrðin fyrir verðmæti vöru samkvæmt framansögðu hvílir á viðskiptamanni.
Bætur vegna hlutatjóns ber að reikna hlutfallslega, þó þannig að bætur vegna hlutatjóns geta aldrei numið hærri fjárhæð en ef varan hefði orðið fyrir altjóni.
5.2. Tafir og/eða seinkun
Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á beinu, óbeinu eða afleiddu tjóni, kostnaði eða skemmdum sem orsakast vegna tafa eða seinkana. Jafnframt ábyrgist félagið ekki að vörur, skjöl eða annað komi til tiltekins staðar á ákveðnum tíma eða nái sérstökum markaði eða notkun, nema um slíkt hafi sérstaklega verið samið fyrirfram með skriflegum hætti.
5.3. Óbeint eða afleitt tjón
Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni eða ágóðatapi. Félagið ber heldur ekki ábyrgð á greiðslu bóta vegna fornmunaverðmætis, tilfinningalegra verðmæta eða annarra sérstakra verðmæta.
5.4. Ábyrgðarleysisástæður
Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á neins konar tjóni sem rekja má til einhverra neðangreindra atvika, sem þó eru ekki tæmandi talning á þeim atvikum sem félagið ber ekki ábyrgð á:
1. Bruna, sprengingu eða vatnstjóns, nema slíkt verði rakið til stórfellds gáleysis eða ásetnings félagsins.
2. Ófullnægjandi eða gölluðum umbúðum eða merkingum á vöru.
3. Gáleysi eða ásetningi viðskiptamanns eða manna á hans vegum.
4. Meðferð, lestun, losun eða hleðslu vöru t.d. í gám eða á vörubretti, sem viðskiptamaður hefur framkvæmt.
5. Bilunum, gangtruflunum, rafmagnsleysi eða öðru því sem leiðir til þess að frystigeymslur, frystigámar, kranar, ökutæki eða önnur tæki félagsins bili eða starfi ekki eðlilega, nema slíkt verði rakið til stórfellds gáleysis eða ásetnings félagsins.
6. Röngum eða ófullnægjandi upplýsingum eða gögnum frá viðskiptamanni.
7. Gagna eða upplýsinga sem viðskiptamaður hefur leynt félaginu.
8. Óviðráðanlegra ytri atvika, sem ekki verður séð fyrir og ekki er unnt að koma í veg fyrir (Force Majeure), eða öðrum þeim ytri aðstæðum sem félagið ræður ekki yfir.
5.5. Eigin sök viðskiptamanns
Bætur til viðskiptamanns skal lækka eða fella þær niður ef sannað er að viðskiptamaður hefur verið meðvaldur að tjóninu vegna ásetnings eða gáleysis. Auk þess ber viðskiptamanni í öllum tilvikum að takmarka tjón sitt í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar.
5.6. Vextir
Ekki skal koma til greiðslu vaxta af kröfum á hendur félaginu fyrr en frá uppkvaðningu dóms.
6. Ábyrgðartakmörkun
Fjárhæð skaðabóta sem félagið kann að bera ábyrgð á eftir 5. til 6. gr. skilmála þessara skulu ekki undir neinum kringumstæðum vera hærri en sem hér segir:
6.1. Einstök takmörkun
Sé um að ræða meðhöndlun vöru eða þjónustu vegna vöru geta bætur vegna skemmda eða taps á vöru ekki orðið hærri en sem nemur 2 SDR fyrir hvert kílógramm brúttó þunga vöru sem tapast eða skemmist eða 667 SDR fyrir hvert stykki eða einingu hvort heldur sem hærra reynist. Bæturnar geta þó aldrei orðið hærri en verðmæti vörunnar sbr. 5.1. gr. skilmálanna.
Við ákvörðun á því hvað telst vera eitt stykki eða eining, skal miða við það sem fram kemur í kvittun fyrir móttöku vöru eða ef slík kvittun er ekki gefin út, það sem fram kemur í farmbréfi vegna flutnings vörunnar.
Í öllum öðrum tilvikum og þegar ekki er hægt að staðreyna þyngd og/eða stykkjatölu vöru geta bæturnar ekki orðið hærri en sem nemur 7.500 SDR vegna hvers tjóns eða fleiri tjóna viðskiptamanns ef orsök þeirra er sú sama.
6.2. Allsherjar takmörkun
Ábyrgð félagsins gagnvart öllum viðskiptamönnum sínum skal vera takmörkuð við 100.000 SDR vegna allra krafna sem rísa vegna eins og sama atburðar. Heimild til takmörkunar eftir þessari grein skal vera fyrir hendi án tillits til þess á hvaða grundvelli ábyrgðin hvílir.
Sérhver fjárhæð, sem sætir takmörkun ábyrgðar samkvæmt þessari grein, skal skiptast milli kröfuhafa að tiltölu við kröfur þeirra. Ákvæði þetta stendur ekki í vegi fyrir því að 6.1. gr. skilmálanna sé beitt í því skyni að takmarka ábyrgð félagsins gagnvart viðkomandi viðskiptamanni.
7. Þóknun
Viðskiptamaður skal greiða félaginu þóknun fyrir þau verk og þá þjónustu sem félagið veitir viðskiptamanni. Jafnframt skal viðskiptamaður endurgreiða félaginu allan kostnað sem félagið hefur greitt fyrir hönd viðskiptamanns. Miða skal þóknun og greiðslu hennar við gildandi gjaldskrá félagsins á hverjum tíma ef ekki er um annað samið. Hafi þóknun og/eða útlagður kostnaður ekki verið greiddur á gjalddaga er félaginu heimilt að krefja viðskiptamann um dráttarvexti frá gjalddaga og allan innheimtukostnað sem kann að falla til.
8. Haldsréttur og samningsveð
Félagið skal eiga haldsrétt og samningsveð í öllum vörum, sem eru í vörslum félagsins, vegna allra krafna þess á hendur viðskiptamanni vegna varanna og vegna allra annarra krafna á hendur honum, sem ekki tengjast vörunum á nokkurn hátt. Ef félagið hyggst beita framangreindum haldsrétti eða samningsveði skal það tilkynna viðskiptamanni skriflega um slíkt.
Í tilkynningunni skal gera almenna grein fyrir tilefni viðkomandi aðgerðar ásamt fjárhæð kröfunnar eða samtölu ef um fleiri kröfur er að ræða. Komi til þess að viðskiptamaður greiði ekki kröfuna í kjölfar framangreindrar tilkynningar er félaginu heimilt að selja vöruna á hvern þann hátt sem félagið telur að sé hagstæðast hverju sinni, á kostnað og áhættu viðskiptamanns og án þess að tilkynna viðskiptamanni það sérstaklega.
Nægi afraksturinn af sölu vörunnar ekki til gera upp kröfuna, á félagið rétt á að fá mismuninn greiddan úr hendi viðskiptamanns ásamt vöxtum og kostnaði. Verði hins vegar afgangur af sölunni, eftir að búið er að gera upp kröfuna ásamt vöxtum og kostnaði, skal hann greiddur viðskiptamanni.
9. Skyldur og ábyrgð viðskiptamanns
Viðskiptamaður ber skaðabótaábyrgð gagnvart félaginu eftir almennum reglum skaðabótaréttar. Viðskiptamaður ábyrgist að hann sé eigandi eða rétthafi vöru sem afhent er félaginu eða að hann hafi fullt umboð frá eiganda vörunnar til þess að biðja um tiltekna þjónustu og samþykkja þessa skilmála fyrir hönd eiganda vörunnar.
Viðskiptamaður ber ábyrgð á því að öllum innlendum og erlendum lögum, reglum og hvers konar fyrirmælum yfirvalda varðandi vöruna og þá þjónustu, sem hann óskar eftir að félagið inni af hendi fyrir hann, sé fullnægt eftir því sem við á.
Viðskiptamaður ábyrgist að öll gögn og allar upplýsingar sem hann veitir félaginu og ber að veita, hvort sem þær eru á rafrænu eða skriflegu formi, séu réttar og nákvæmar. Viðskiptamaður gerir sér grein fyrir því að á þessum gögnum og upplýsingum byggir félagið þegar það veitir þjónustu sína.
Viðskiptamaður ber ábyrgð á því að kynna starfs- eða umboðsmönnum sínum eða öðrum sem starfa fyrir hann þessa skilmála.
Viðskiptamanni er auk þess sem að framan greinir skylt að bæta og halda félaginu skaðlausu vegna allra afleiðinga þess að:
1. Upplýsingar varðandi vöru og/eða annað sem hann gefur félaginu eru rangar, ógreinilegar eða ófullnægjandi.
2. Umbúðir vöru eða merkingar voru lélegar eða ófullnægjandi.
3. Lestun eða hleðslu vöru t.d. á vörubretti eða í gámi, af hálfu viðskiptamanns eða manna á hans vegum var ófullnægjandi.
4. Varan hefur skaðlega eða hættulega eiginleika sem ekki voru tilgreindir sérstaklega.
5. Einhver annar en viðskiptamaður byggir rétt eða heimild á og/eða fer eftir upplýsingum eða ráðleggingum sem félagið hefur veitt viðskipamanni.
6. Félaginu hefur verið, án þess að það hafi að öðru leyti bakað sér ábyrgð, gert skylt að greiða aðflutningsgjöld, skatta eða önnur opinber gjöld.
7. Viðskiptamaður vanefnir og/eða brýtur gegn ákvæðum þessara skilmála.
10. Undirverktakar
Félaginu er heimilt að ráða undirverktaka á hvaða skilmálum sem er til að annast þau störf og þá þjónustu sem félagið tekur að sér gagnvart viðskiptamanni. Allir starfsmenn félagsins og undirverktakar þess eiga rétt á að bera fyrir sig öll ákvæði skilmála þessa, eftir því sem við á, enda gerir félagið samning við viðskiptamann um viðkomandi þjónustu bæði fyrir sína hönd og sem umboðsaðili og fulltrúi slíkra starfsmanna og undirverktaka.
11. Sending tilkynninga
Ef gert er ráð fyrir í skilmálum þessum að annar hvor aðili skuli senda gagnaðila tilkynningu, hverju nafni sem hún nefnist, þá skal hún send af stað með sannanlegum hætti til þess heimilisfangs sem aðilar hafa gefið upp eða lögheimili þeirra, eins og það er skráð þegar tilkynning er send af stað. Sé þess gætt skal tilkynningin hafa þá þýðingu og þau réttaráhrif sem henni er ætlað að hafa jafnvel þótt hún komi afbökuð, of seint eða alls ekki til viðtakanda.
12. Tilkynningar um tjón og tómlæti
Viðskiptamaður skal senda félaginu skriflega tilkynningu um tjón, sem hann telur að félagið beri ábyrgð á, jafnskjótt og tjónsins verður vart og í síðasta lagi áður en liðnir eru tíu (10) dagar frá því að hann vissi eða mátti vita um tjónið.
Í framangreindri tilkynningu skal koma skýrt fram um hvaða vöru er að ræða, fjárhæð bótakröfu ef kostur er og ástæðu þess að félaginu er haldið ábyrgu vegna viðkomandi atviks ef við á. Sé ekki tilkynnt um tjón samkvæmt framansögðu skal réttur viðskiptamanns til þess að krefja félagið um bætur vegna atviksins falla niður sökum tómlætis.
Þrátt fyrir framangreind ákvæði um tilkynningu skulu allar kröfur á hendur félaginu falla niður sökum tómlætis innan eins árs frá þeim tíma sem hér segir:
1. ef um er að ræða kröfu vegna tjóns eða skemmda á vöru, frá afhendingu vörunnar eða þeim degi er félaginu bar að afhenda viðskiptamanni vöruna,
2. ef um er að ræða tollafgreiðslu samkvæmt 4. gr. skilmála þessara, frá þeim degi er tollskýrsla var send af stað til tollyfirvalda, hvort sem það var með SMT sendingu eða með öðrum hætti, eða
3. ef hvorugt á við, frá þeim degi er viðkomandi þjónusta var innt af hendi.
Að öðru leyti skulu almennar reglur laga um fyrningu kröfuréttindi nr. 150/2007 gilda um fyrningu krafna samkvæmt þessum skilmálum.
14. Lögsaga
Íslensk lög skulu gilda um skilmála þessa. Mál vegna skilmála þessara skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
15. Tryggingar
Félagið tryggir ekki vörur sem eru í vörslum félagsins, dótturfélaga þess eða undirverktaka. Af þeim sökum er viðskiptamanni bent á að tryggja allar vörur gegn hvers kyns tjóni sem hægt er að tryggja gegn.
16. Gildistaka
Þessir almennu þjónustuskilmálar Express ehf. skulu taka gildi frá og með 1. nóvember 2022.
Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar skulu taka gildi frá og með þeim degi er breyttir skilmálar eru birtir á heimasíðu félagsins.