Tjón og Ábyrgð
Ef við berum ábyrgð á tjóni, skemmdum eða töfum greiðum við bætur allt að USD 100 eða sambærilegt í mynt viðkomandi lands sé tjón sannað. Ef sendingin er samkvæmt Varsjársamkomulaginu eða CMR-samkomulaginu um skilmála eru hámarksbætur breytilegar.
Unnt er að kaupa aukna ábyrgð fyrir verðmætari sendingar og er þá verðmæti sendingarinnar tilgreint á farmbréfinu, allt að 50.000 Bandaríkjadölum eða jafnvirði þeirrar upphæðar í gjaldmiðli viðkomandi lands fyrir hvern einstakan pakka í sendingu. Ef þú tilgreinir meira verðmæti sendingar en almennar bætur okkar hljóða uppá og greiðir viðkomandi aukagjald er ábyrgð UPS takmörkuð við skaða allt að þeirri fjárhæð sem tilgreind er.*
Margfaldaðu tilgreint heildarverðmæti sendingar með 1% til að finna aukagjald fyrir sendingu samkvæmt ofansögðu.
Þegar samningsbundnir skilmálar eða lög útheimta ekki annað, greiðum við ekki bætur fyrir hreint fjárhagastjórn (s.s. skertan hagnað, glötuð viðskiptatækifæri eða tekjur sem kunna að tapast vegna sendingar sem ekki nýtist) þrátt fyrir að verðmætið hafi verið tilgreint fyrir viðkomandi sendingu.